Myndbandagerð og ljósmyndun
Raunverulegt fólk. Sannar sögur.
Ég heiti Stefán Drengsson og er kvikmyndagerðarmaður og ljósmyndari. Ég hjálpa fyrirtækjum að sýna hver þau eru með því að fanga fólkið, vinnuna og augnablikin sem einkenna þau.
Sagan er í því sem þið gerið.
Gervigreind getur búið til mynd. Ég hef áhuga á því sem gerist þegar maður mætir á staðinn: samtalinu, handverkinu og óvæntu augnablikunum. Ég hitti fólkið, spyr spurninga og fanga það sem gerir fyrirtækið þitt að því sem það er.
Úr því verða myndbönd og ljósmyndir sem byggja á raunverulegri reynslu og segja sögu sem fólk getur skilið og tengt við.
Hvað getum við skapað saman?
Myndbandagerð
Myndbönd sem færa fólk nær fyrirtækinu þínu. Viðtöl, kynningarmyndir, sögur viðskiptavina og stutt myndskeið fyrir vef og samfélagsmiðla. Ég þróa hugmyndina, tek upp og klippi með það að leiðarljósi hvað þú vilt að fólk skilji og upplifi.
Ljósmyndun
Fólk, staðir og vinna, með auga fyrir augnablikunum sem skipta máli. Mannamyndir og ljósmyndir úr daglegu starfi fyrir vef, kynningarefni og samfélagsmiðla. Ljósmyndun er í boði sem sjálfstætt verkefni eða samhliða myndbandagerð.
Látum þetta vinna saman
Vefsíður
Skýrar og vandaðar vefsíður sem kynna fyrirtækið þitt, gefa efninu gott rými og auðvelda fólki að taka næsta skref.
Markaðsefni og samfélagsmiðlar
Aðstoð við skilaboðin, efnið og miðlunina. Hugmyndavinna, textagerð, stutt myndskeið, ljósmyndir og færslur sem henta þínum miðlum.
Við getum unnið að einu verkefni eða skipulagt reglulega efnisgerð. Vefsíðugerð og aðstoð við markaðsefni eru einnig í boði sem sjálfstæð verkefni.
Ég heiti Stefán Drengsson.
Ég er kvikmyndagerðarmaður, ljósmyndari og blaðamaður í Reykjavík. Bakgrunnur minn er í rannsóknarblaðamennsku, heimildagerð og miðlun fyrir fyrirtæki.
Ég hef starfað við rannsóknarþáttinn Kveik á RÚV og við samskipti og miðlun hjá Alvotech. Sú reynsla hefur kennt mér að finna söguna, spyrja réttu spurningarin og gera flókin viðfangsefni skiljanleg.
Það sem heillar mig mest er að kynnast fólki og uppgötva hvað skiptir það máli. Sú forvitni fylgir mér í hvert verkefni, hvort sem það er myndband, ljósmynd eða vefsíða sem á að sýna hver þú ert.
Þú vinnur beint með mér, frá fyrsta samtali til lokaafurðar.
BA í kvikmynda- og fjölmiðlafræði · MA í blaðamennsku
Frá fyrsta samtali að tilbúnu efni
Finnum kjarnann.
Við ræðum hvað þú vilt segja, til hverra þú vilt ná og hvar efnið á að birtast.
Búum til efnið.
Ég skipulegg og vinn myndbandið, ljósmyndirnar eða vefsíðuna út frá því markmiði.
Gerum það tilbúið til notkunar.
Við förum yfir afraksturinn og undirbúum þær útgáfur sem samið var um fyrir þína miðla.
Hvað viltu sýna?
Segðu mér aðeins frá fyrirtækinu þínu og því sem þú hefur í huga. Hvort sem þig vantar myndband, ljósmyndir, vefsíðu eða aðstoð við að tengja þetta saman, byrjum við á samtali.